Heimasíða Golfkl. Vestarr, stofn. 1995 s: 438-6520 |
|
Færslur: 2015 September25.09.2015 20:32Afmælismót
Sunnudaginn 27.09.15. Opið fyrir skráningu til 11.00 sama dag. Ræst út á öllum teigum kl:13.00. Veðurspáin
er fín fyrir sunnudag. Veglegir
vinningar í karla & kvennaflokki. Allar nánari
upplýsingar á www.golf.is Mótstjóri
Ágúst Jónsson s: 863-3138 Skrifað af Mótanefnd 17.09.2015 13:3820 ára afmælishátíð VestarrGoflklúbburinn Vestarr. 20 ára afmælishátíð. Laugardaginn 26 september 2015 verður afmælis og árshátiðarmót Vestarr haldið á Bárarvelli og um kvöldið hátíðardagskrá í Samkomuhúsi Grundarfjarðar Dagskrá dagsins Golfmót á Bárarvelli. Opið 18 holu mót, rástímar frá 09:30 til 12:00 Skráning í mótið er á Golf.is Vegleg verðlaun og heildaverðmæti vinninga er 200.000kr. Þátttkugjald 3500.kr (ATH. takmarkur fjöldi kemst að í mótið) Kl. 20.00 hefst svo árs- og afmælishátið Vestarr í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Verð, 7500kr. Matur, skemmtun og dansleikur Húsið opnar kl. 19:30
Matseðill Forréttur Sjávarréttadiskur: Grafinn þorskhnakki, Marineraður humar, Pestórækjur, reyktan lax og heimabakað brauð Aðalréttur Lambafile með rauðbeðusalati, kartöflugratín, ofnbökuðu blómkáli og rauðvínssósa Kaffi og súkkulaði eftir mat. Miðasala á árs- og afmælishátíð hjá Garðar s.6621709, Kristínu s.8639007 og Unni Birnu s. 8685167. einnig er hægt að senda post á [email protected] og panta miða. Skráning í mat þarf að vera lokið eigi síðar en kl. 20.00 fimmtudaginn 24 sept 2015 Að lokinni árs- og afmælishátið tekur Siggi Hlö við og heldur uppi fjöri fram eftir nóttu. Húsið opnar kl. 23.30. Miðaverð á dansleik 2500.kr Verð fyrir Golfmót, hátíðardagskrá og dansleik kr. 9000.- 16.09.2015 23:03Afmælis og ársháríðarmót.20 ára afmælis og árshátíðarmót golfklúbbsins Vestarr. Verður haldið laugardaginn 26.09.2015. Skráning á golf.is Veitt verða veðlaun bæði í karla og kvennaflokki. Besta skor 30.000 gjafabréf frá Golfskálanaum 1. Sæti punktar kk/kvk 30.000 gjafabréf frá Golfskálanum 2. Sæti punktar kk/kvk 20.000 gjafabréf frá Golfskálanum 3. Sæti punktar kk/kvk 10.000 gjafabréf frá Golfskálanum Nándarverðlaun á 4/13, 20.000 gjafabréf frá Golfskálanum Nándarverðlaun á 8/17, 20.000 gjafabréf frá Golfskálanum Næst holu í öðru höggi á 1/10, 20.000 gjafabréf frá Golfskálanum. Verðlaun fyrir punkta og besta skor eru gefin af Djúpakletti ehf. Nándarverðlaun eru gefin af Ragnar og Ásgeir ehf. Mótstjóri Ágúst Jónsson s: 863-3138 Sama dag verður haldið afmælis og árshátíðarhóf í samkomuhúsi Grundarfjarðar, nánar auglýst síðar. Skrifað af Mótanefnd 08.09.2015 15:38Stjórnarfundur 07.09.2015Stjórnarfundur
07.09.2015 kl.20.00 Haldinn
í golfskálanum að Bárarvelli Mættir: Helga Ingibjörg Reynisdóttir, Guðrún Björg
Guðjónsdóttir, Ágúst Jónsson, Garðar Svansson og Unnur Birna Þórhallsdóttir 1. Fundur
settur 2. Seinasta
fundargerð samþykkt 3. Árshátíð
og afmælismót 26.sept.- Rætt var um hverjum ætti að bjóða bæði á golfmótið og
árshátíð. Siggi Hlö búinn að staðfesta komu sína til að sjá um ballið og búið
er að bóka samkomuhúsið. Búið er að útnefna heiðursfélaga sem verður heiðraður
á árshátíðinni. Garðar ætlar að athuga með starfsmerki GSÍ. Hann ætlar einnig að athuga hvernig gengur
hjá árshátíðarnefndinni. Rætt var áfram um mótið, s.s.teiggjafir, verð og
fleira. 4. Ryder
karla 12.sept - Lítur ágætlega út með veður á laugardaginn. Grill verður í
mótslok. Karlasveit Vestarr er ábyrg fyrir mótinu og sér um það. 5. Bæjarstjóra
og sveitastjórn hefur verið sent erindi vegna áframhaldandi sláttusamnings og
ýmislegt fleira sem er í farvatninu. 6. Vélamál
- Garðar hefur fundið varahluti í brautarvélina sem kosta okkur 250.000.- og
reiknað er með annarri eins upphæð í vinnulaun. Höfum fengið tilboð í viðgerð
uppá 650.000.- Ákveðið að taka ekki því
tilboði heldur kaupa sjálf varahlutina. 7. Nefndir
- Mótanefnd: Sumarið hefur verið fjörugt og fjölbreytt. Bryddað var upp á ýmsum
nýjungum sem féllu í góðan jarðveg.
Vestarr Víkingur og Valkyrja er eftir og svo árshátíðar/afmælismót sem
verður stórt og glæsilegt. Kvennanefnd: Sendum sveitir til þátttöku
hjá báðum aldursflokkum. Tókum þátt í sveitakeppni öldunga í fyrsta skiptið.
Kvennastarfinu er lokið þetta sumarið. Haldið verður Vesturlandsmót kvenna hjá
okkur næsta sumar og verður það seinasta laugardag í ágúst eins og venja er. Skálanefnd: Það er lítið að frétta af
nefndinni. Formaður nefndarinnar gefur ekki kost á sér næsta starfsár. 8. Hreyfivikan
21.-27.sept. - Völlurinn verður opinn fyrir almenning gjaldfrjálst. Það væri
gaman að hafa eitthvað skemmtilegt uppá að bjóða og komu einhverjar hugmyndir
fram en ekkert ákveðið. 9. Aðalfundur
Golfklúbbsins Vestarr - Hann verður haldinn 16.nóvember kl.20.00 í
Sögumiðstöðinni. 10. Önnur
mál - Videomyndir af vellinum sem teknar eru úr dróna eru komnar inná vestarr.net.
Þetta er frá Tómasi Kristjánssyni. Það gengur illa að opna þetta og þarf að
laga það. Garðar ætlar að sjá um að þetta komist í lag. Það verður vinnudagur sunnudaginn
4.oktober. Garðar sagði frá því að hann er enn að
reyna að komast yfir gervigras sem er hætt að nota. Einnig malbikunarfræs til
að setja á göngustíga.
Fundi
slitið kl.21.30 Unnur
Birna Þórhallsdóttir Ritari
Golfklúbbsins Vestarr Skrifað af Unnur Birna 08.09.2015 11:09Vestarr Vikingur/ValkyrjaNÚ REYNUM VIÐ EINU SINNI ENN!! VESTARR Víkingur/Valkyrja sunnudaginn 13.09.15 Skrifað af Mótanefnd 07.09.2015 12:28Vinaklúbbakeppni Vestarr og MostraRyder Vestarr - Mostri - karla Félagar í Vestarr skrái sig á 1. teigFélagar í Mostra skrái sig á 10. teig. Eftir fyrri umferð sem var spiluð á Víkurvelli fyrr í sumar þá er staðan sú að Mostramenn leiða með 4 vinningum. Boðið verður upp á Grillað lambakjöt að móti loknu. Verð kr.2500.- Gert er ráð fyrir að allir taki þátt í grillinu en þeir sem ekki ætla að vera með láti vita í síma 6621709 Sveitalið Vestarr sér um grillið af sinni alkunnu snild.Vestarr menn eru minntir á veitingar, bakkelsi og annað sælkerafóður. Ræst er út kl. 10.00 á öllum teigum og kylfingar hvattir til að mæta tímalega Fyrst er spilað Texas svo Greensome og að lokum tvímenningur og þar er raðað saman eftir forgjöf.Dregið er um hvar forgjafarlægstu hefja leik í tvímenning.
|
Vafraðu umFlettingar í dag: 250 Gestir í dag: 160 Flettingar í gær: 744 Gestir í gær: 195 Samtals flettingar: 1966516 Samtals gestir: 230390 Tölur uppfærðar: 17.4.2021 17:48:32 TenglarEldra efni
|
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is