Heimasíða Golfkl. Vestarr, stofn. 1995 s: 438-6520 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Færslur: 2015 Júní19.06.2015 23:33Texasmót hjá Mostra á næstu helgiTexsasmót hjá MostraLaugardaginn 27 júní verður haldi texasmót hjá Mostra í Stykkishólmi. Glæsilegt mót. Verðlaun: 1.sæti -Gjafabréf í Hole in One 2 x kr. 30.000,- 2.sæti -Gjafabréf í Hole in One 2 x kr. 20.000,- 3.sæti -Gjafabréf í Hole in One 2 x kr. 15.000,- 4.sæti -Gisting -Hótel Stykkishólmur 2 x fyrir tvo með morgunverði.5.sæti - 2 x Matur fyrir 2 - Hótel Stykkishólmur Nándarverðlaun:6/15 hola - Matur á Veitingastaðnum Plássinu 9/18 hola - Matur á Veitingastaðnum Plássinu3/12 hola eftir 2.högg - Matur á veitingastaðnum Plássinu 4/13 hola eftir 3 högg - Gjafabréf frá frá versluninni Skipavík Þátttökugjald kr. 4.500 á mann - Súpa og brauð að móti loknu er innifalið. Mæting kl 18:00 Allir ræstir út kl 18:30 Hámarksforgjöf karla : 24,0Hámarksforgjöf kvenna : 28,0 leikforgjöf liðs verður : samanlögð forgjöf leikmanna deilt með 3 - verður þó aldrei hærri en forgjöf þess sem hefur lægri forgjöf. Styktaraðilar mótsins eru Hótel Stykkishólmur Þórsnes Mars sjávarafurðir Erla og Rabbi Group Skipavík og plássið. Mótsstjóri Ásgeir Guðmundsson sími ![]() 16.06.2015 21:36Jökulmílan 2015Sæl öll Skipulagið fyrir Jökulmíluna er allt að skríða saman, Svona er staðan í dag, enn vantar í örfáar stöður og þeir sem hafa lausan tíma eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Sjá nánar hér neðar. Kl. 14.00 á föstudag er mæting í Grunnskólann þar sem smurt verður brauð v/drykkjarstöðva og Kjötsúpan undirbúinn. Þeir sem ætla taka þátt í verkefninu eru beðnir að hafa samband við Unni Birnu, Kristínu P eða Systu. Einnig er hægt að skrá sig á FB síðu klúbbsins
15.06.2015 14:31Jökulmílan 2015Á næsta laugardag fer fram á Snæfellsnesi reiðhjólakeppnin Jökulmílan Upphaf og endir keppninar er í Grundarfirði og hefur Golfklúbburinn Vestarr nokkra aðkomu að þessu móti en félagsmenn sjá um nesti fyrir keppendur og súpu í mótslok. Á föstudaginn verður hist upp í skóla og gengið frá nesti fyrir keppendur, smurt brauð og fl. Mætin kl. 14.00 í Grunnskólanum. Einnig er það á ábyrgð okkar að manna drykkjarstöðvar á meðan keppnin stendur. Drykkjarstöðvar eru á eftirfarandi stöðum og einnig opnunartími þeirra, Hraunkot, 10.30 til 11.30 Búðir 11.00 til 13.30 Vegamót 12.00 til 16.00 (Hreysti) Stykkishólmur 12.00 til 16.00 Bjarnarhöfn 12.30 til 17.00 Óskað er eftir að félagsmenn Vestarr taki virkan þátt í þessu starfi og skrái sig til starfa Hægt er að skrá sig á FB síðu klúbbsins, hér á þessari síðu í athugasemdum og einnig hjá Kristínu Pétur og Unni Birnu. Grundarfjörður, 20. júní 2015Jökulmílan er einn af lengstu hjólreiðaviðburðum sem eru skipulagður árlega á Íslandi. Hringurinn meðfram strandlengju Snæfellsness, vestur fyrir Jökul og til baka um Vatnaleið er um 162 km langur, eða rétt rúmlega 100 mílur. Jökulmílan er því "100 mílureið" eða á ensku "Century Ride" sem er vinsæl tegund hjólreiðaviðburða víða um heim. Eins og tíðkast með slíka viðburði, viljum við skipuleggjendur Jökulmílunna höfða til breiðs hóps hjólreiðamanna. Við skorum á þig að reyna Jökulmíluna á þínum eigin forsendum óháð því hvað aðrir kynnu að hjóla hana hægt eða hratt. Keppendur af sambandsvæði HSH fá 30% afslátt af keppnisgjöldum Nota þarf afsláttarkóðann NES (ath! allt stórir stafir). Hann mega allir nota sem eiga lögheimili á Snæfellsnesi og veitir hann 30% á þátttökugjaldi í Jökulmílunni og Hálfri Jökulmílu. Þessi 30% afsláttur reiknast líka á fjölskyldugjaldið. 12.06.2015 11:37StjórnarfundurStjórnarfundur
10.júní 2015 kl.21.00 Haldinn
í golfskálanum á Bárarvelli Mættir: Guðrún Björg, Systa, Garðar, Kjartan (sem kom
seint) og Unnur Birna. Seinasta fundargerð samþykkt af öllum viðstöddum. Jökulmílan: Verður 20.júní og
byrjar kl.10.00. Það eru 90 keppendur skráðir en búast má við helmingi fleiri.
Fer eftir veðurspá. Meðlimir golfklúbbsins þurfa að vera til taks þennan
dag. Garðar pantar matinn á
þriðjudaginn; brauð, sætabrauð, kjöt í kjötsúpuna og álegg. Þeir sem eiga heimangengt á föstudeginum
fyrir Jónsmessumótið mæti til að smyrja brauð. Það vantar svo 6 manns í
súpugerðina á laugardeginum og 8 manns á stöðvarnar. Garðar benti á að það ætti
að skera brauðið í fernt og við munum eftir að setja smjörpappír á milli laga. Mótamál: Garðar er búinn að sækja verðlaun fyrir
fyrirtækjamótaröðina og Ragnars og Ásgeirsmótaröðina hjá Golfskálanum. Sveitakeppni: Guðrún Björg er búin
að bóka fyrir konurnar í Ölfusborgum. Guðrún Björg athugaði og bókaði fyrir
konur í 50+ en það er mjög dýrt. Athuga betur með gistingu fyrir það mót. Talað
var um að halda styrktarmót fyrir öldunga þann 18.júlí. Karlarnir hafa ekki
sýnt áhuga á að taka þátt í öldungasveitakeppninni. En Guðrún Björg sendir póst
og kannar áhuga kvenna á þátttöku í sínu móti. Vallarmál, vinnudagur: Ræða við Kristínu P. um að redda sandi eins
og í fyrra. Garðar er að reyna að fá gervigras sem á að farga til að setja á
stíga. Vaæri gott að fá malbik sem hefur
verið fræst úr götunum, það bindur saman mölina. Vallarnefnd þarf að far yfir völlinn og koma
með staðarreglur. Kalla á út vinnudag til að sanda og fleira sem þarf að laga. Önnur mál: Við þurfum ný flögg. Garðar ætlar að athuga með það. Það
kom upp hugmynd að hafa Grun flöggin á mótum og önnur flögg dagsdaglega. Settagámurinn er oft opinn. Þurfum nýjan lás með lykli.
Jafnvel setja hurð sem hægt væri að læsa. Gjaldkeri þarf að fara yfir það
hverjir eiga pláss og rukka þá sem vilja leigja. Það eru verið að skipuleggja eitthvað í Þríhyrningi á
17.júní og við beðin um að vera með SNAG-ið þar. Garðar ætlar að sjá um það og
fá jafnvel einhvern með sér. Talað var um æfingarhögg inná grínin á vellinum. Þetta er
sérstaklega áberandi á 9.braut.
Ábending: Spilum á vellinum og æfum á æfingarsvæðinu! Kjartan vill að dráttarvélaförin á vellinum verði löguð. Fundi
slitið kl. 22.05 Unnur
Birna Þórhallsdóttir Ritari
Golfklúbbsins Vestarr 11.06.2015 12:15Veitingasala.Á mótinu í dag verður boðið uppá dýrindis túnfiskssamlokur, grænmetissamlokur (takmarkað framboð) og hinar hefðbundnu lúxussamlokur (grilluð samloka með skinku og tveimur ostsneiðum). Hlökkum til að afgreiða þig, kv. Rúna og Systa. ![]() Skrifað af Systu. 10.06.2015 11:27JónsmessumótJónsmessumót 19.júní 2015. Ræst út á öllum teigum kl: 20.00. Auka leikreglur: Mótsgjald 3.000 kr. Skrifað af Mótanefnd 09.06.2015 12:52Húsasmiðjumóti hjá MostraOpna Húsasmiðjumótið fyrir eldri kylfinga.Miðvikudaginn 17.júní verður haldið i fyrsta sinn opið mót fyrir eldri kylfinga hjá Golfklúbbnum Mostra. Mótið er ætlað körlum 55 ára og eldri og konum 50 ára og eldri. Verðlaun verða veitt fyrir besta skor án forgjafar bæði í kvenna- og karlaflokki. Síðan verða veitt verðlaun fyrir fjögur efstu sætin í opnum flokki fyrir flesta punkta. Ekki er hægt að vinna til verðlauna bæði með og án forgjafar. Nándarverðlaun verða á par þrjú holunum.Vestarr fólk sérstaklega hvatt til að taka þátt. Skráning er á golf.is. 02.06.2015 20:05Vestarr 1VESTARR 1. Reynum að skella 1 móti í Vestarr mótaröðinni á fimmtudaginn 4. júní. Ræst verður út á öllum teigum kl: 17.30 Skráning á golf.is Mæting klukka 17:00 Mótstjóri Anna María s:869-6076 Mótanefnd Skrifað af Mótanefnd 01.06.2015 10:51Sjómannadagsmót G.RUNSJÓMANNADAGSMÓT G.RUN Skemmtimót G.RUN hf. Í tilefni Sjómannadags heldur G.RUN hf sjómönnum og öðrum golfurum skemmtimót á Bárarvelli. Mótið er í boði G.RUN hf. Skráning er á golf.is, einnig er skráning á staðnum. Keppendur eru beðnir að mæta tímalega. Mæting er kl. 17.30 í skála. Spilað verður Greensome. Báðir spilarar taka upphafshögg á teig og síðan spilaður betri bolti i holu. Ætlast er til að vanur og óvanur spili saman. Raðað verður í pör á staðnum. Allir velkomnir, veitingar að móti loknu. Aríðandi er að skrá í mótið tímalega til að auðvelda uppsetningu og tryggja að mótið hefjist á réttum tíma Upplýsingar um mótið og skráning fyrir þá sem ekki geta skráð sig á netinu eru hjá Önnu Maríu S: 869-6076 Skrifað af Mótanefnd 01.06.2015 09:22BikarkeppniBikarkeppni Vestarr Leikreglur: Forkeppni skal lokið 15.júní Fyrstu umferð skal lokið 5.júlí Annari umferð skal lokið 20.júlí Þriðju umferð skal lokið 5. ágúst Úrslitum skal lokið 20.ágúst Leikreglur í Bikarkeppni. Bráðabani skal vera þannig: Leikin skal 1 hola og ef enn er jafnt skal leikin 9 hola, ef enn er jafnt skal leikinn 10 hola og að lokum 18 hola. Þessar brautir skulu leiknar á þennan hátt þar til úrslit nást. ATH. Leikmaður heldur forgjöf sem hann á á þessar brautir. Skrifað af Mótanefnd
|
Vafraðu umFlettingar í dag: 131 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 281 Gestir í gær: 60 Samtals flettingar: 1744675 Samtals gestir: 210334 Tölur uppfærðar: 8.12.2019 12:26:36 TenglarEldra efni
|
© 2019 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is