30.03.2015 10:40
Hver er tilbúinn að stýra kvennanefnd Vestarr.
Á aðalfundi Vestarr lét Bryndís Theodórsdóttir af formennsku í Kvennanefnd.
Núna leitar stjórn Vestarr að fulltrúa til að stýra / leiða starfi kvennanefndar.
Framundan er að venju öflugt starf, bæði hjá Vestarr og einnig í samstarfi við nágranna klúbba okkar.
Má þar helst nefna, kvennakvöld Vestarr, síðkjólamót Vestarr, vinaklúbbasamstarf við Mostra, Vesturlandsmót kvenna og sveitakeppni GSÍ en að þessu sinni verður spilað í Hveragerði.
Þær konur sem hafa áhuga á að taka þátt í að stýra skemmtilegu starfi eru vinsamlegast beðnar að hafa samband við Unni Birnu eða Garðar
Kær kveðja frá stjórn GVG