Heimasíða Golfkl. Vestarr, stofn. 1995 s: 438-6520 |
|
Færslur: 2011 Nóvember15.11.2011 19:51AðalfundurAðalfundur golfklúbbsins Vestarr verður haldinn 29.nóv 2011 kl:18.00 í Sögumiðstöðinni. Dagskrá aðalfundar. 1. Kosning fundarstjóra. 2. Kosning fundarritara. 3. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári. 4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 5. Umræður og atkvæðagreiðslur um skýrslu stjórnar og ársreikninga. 6. Framkomnar tillögur og fjárhagsáætlun. 7. Kosning formanns 8 Kosning ritara / gjaldkera 9. Kosning og /eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8.grein. 10. Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara. 11. Önnur mál. Reglugerðabreyting lögð fyrir aðalfund. Breyting á 6.grein. 6.grein Stjórn klúbbsins skipa: Formaður, ritari, gjaldkeri og formenn nefnda annarra en skemmtinefndar og kvennanefndar samanber grein 8 Skulu formaður, ritari og gjaldkeri kosnir skriflega á aðalfundi. Formaður til eins árs í senn en ritari og gjaldkeri til tveggja ára í senn. Stjórnarmenn má endurkjósa gefi þeir kost á sér. Tveim vikum fyrir aðalfund skal stjórn skipa 3 manna kjörnefnd. Einn nefndarmanna skal vera í stjórn. Kjörnefnd skal leita eftir framboðum til embætta sem kjósa skal í og sjá til þess að a.m.k. einn frambjóðandi sé til hvers þeirra. Stjórnin getur jafnframt falið kjörnefnd að leita eftir framboðum eða tillögum um skipan nefnda, sbr. 8.grein. Komi fram fleira en eitt framboð, fyrir eða á aðalfundi, um formennsku í nefndir skal kosið í þá nefnd á aðalfundi samhliða kosningu stjórnar. Skrifað af AMR 15.11.2011 19:38StjórnarfundurStjórnarfundur 15.11.2011 Haldinn í FSN. Mættir Dagbjartur, Pétur Vilberg, Helga Ingibjörg, Anna María, Guðni. Kylfingur ársins valinn. Golfþing 19.11.2011. Pétur Vilberg sendi inn tillögu til þingsins um breytingu á sveitakeppni í neðri deildum. Keppt verði í holukeppni en ekki höggleik. Pétur fer á golfþing, ef einhver vill fara á golfþingið þá endilega hafa samband við Pétur. Styrkbeiðni var send inn til Grundarfjarðarbæjar um styrkt vegnal barna og unglingastarfs og flataframkvæmda. Frágangur á velli. Dagbjartur og Guðni ætla að fara út og völl og yfirfara hvort ekki sé búið að ganga frá fyrir veturinn. Uppstillinganefnd: Stjórn Vestarr. Ef þú vilt gefa þig fram í stjórn klúbbsins hafðu þá samband við uppstillinganefnd. annamaria@grun.is
Skrifað af AMR
|
Vafraðu umFlettingar í dag: 172 Gestir í dag: 49 Flettingar í gær: 207 Gestir í gær: 48 Samtals flettingar: 1744435 Samtals gestir: 210278 Tölur uppfærðar: 7.12.2019 08:26:05 TenglarEldra efni
|
© 2019 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is